Rjúpnavegur 8 806 Selfoss
Rjúpnavegur 8 , 806 Selfoss
34.500.000 Kr.
Tegund Sumarhús
StærÐ 48 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1987 31.100.000 25.750.000 0
Tegund Sumarhús
StærÐ 48 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1987 31.100.000 25.750.000 0

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:  
  
Einkar fallegur sumarbústaður á gróinni 2.576 fm lóð við Rjúpnaveg í Reykjaskógi.
Bústaðurinn hefur fengið mikla endurnýjun á undanförnum árum og er vel viðhaldið. 
Falleg aðkoma er að húsinu sem er umvafið gróðri, timburpallar umhverfis húsið með góðri aðstöðu, heitur pottur, tyrfð flöt með leiktækjum.

Bústaðarinn er staðsettur við Rjúpnaveg í Reykjaskógi í námunda við Brúarárfoss (10-15 mínútna göngufæri) U.þ.b. 90 km frá Reykjavík. Einungis um 10 mínútna akstur á Laugarvatn, Reykholt og Geysi.
Búið er að tengja húsið við hitaveitu. Bústaðurinn er skráður 48 fm, þar að auki er svefnloft yfir hluta hússins sem er með opnanlegum glugga.

Nánari lýsing:

Hús að innan er panelklætt og stofa og eldhús eru í opnu rými með uppteknu lofti og útgengi á suðurpall.
Forstofa: Nýr tvöfaldur fataskápur í forstofu, (IKEA)
Eldhús: Endurnýjað 2020, hvít eldhúsinnrétting frá IKEA, innbyggður ofn (Gram), helluborð (Electrolux), uppþvottavél (Electrolux) og frístandandi ísskápur (Electrolux).
Baðherbergi: Endurnýjað 2020, baðherbergisveggir klæddir vatnsþolinni spónaplötu og málaðir hvítir (panelklæðning rifin og veggir opnaðir). Nýr hornsturtuklefi, salerni, handlaug á skáp, skápur yfir með spegli og hár hliðarskápur. Einföld hitastýring fyrir útipott sett á vegg og niðurfall sett í baðgólf. 
Tvö svefnherbergi eru í húsinu, annað herbergjanna er með tvöföldu rúmi og koju, hitt með tvöföldu rúmi. Svefnloft er yfir hluta hússins (fremur lágt til lofts) með glugga og tveimur rúmum.

Árið 2021 var húsið heilmálað að utan. Þá voru einnig gluggar málaðir að utanverðu.
Árið 2023 var þakskegg  endurgert að miklu leyti og pallur að hluta.
Árin 2019-2020 var skipt alveg um allt gólf í húsinu. Allt gólf rifið niður úr gegn, þverbitar undir gólfi sums staðar styrktir. Ný einangrun í gólfi með rakavarnarlagi að ofan og lokað að neðan með krossvið. Vatnsþolin spónplata efst, svo undirlag og parket. Harðparket frá Birgisson lagt á allt nema dúkur frá Kjaran á baðherbergi og forstofu sem nær 10 cm upp á vegg, soðinn í hornum og samskeytum.

Bústaðurinn er timburhús byggt á steyptum súlum og stálbitum klætt standandi viðarklæðningu.

Góð skriðhæð er undir húsinu (ca 1m +/-). Gott geymslupláss þar. Grindverk upp að palli allan hringinn með nokkrum opnanlegum hliðum.
Geymsluskúr er óeinangraður og áfastur húsinu.
Pallar: Pallur á þrjá vegu við húsið, með handriðum og tröppum á fjórum stöðum niður í garð. Heitur pottur: Blómaskel frá Trefjum með einangruðu loki og tilheyrandi, keypt og sett upp árið 2018. Potturinn er á sér palli með háum skjólveggjum.

Hitaveita (borhola Efri-Reykir). Nýr lagnaskápur frá Blikksmiðjunni Vík settur upp utanhúss 2019 við austurvegg með nýrri lagnagrind frá Ísleifi Jónssyni.
Tveir forhitarar eru í lagnaskáp, annars vegar fyrir frostlagarkerfi ofnanna og hins vegar fyrir neysluvatn og pott. Allar pípulagnir nýjar stállagnir og allir ofnar og hitastillar nýir (2019-2020).
Ný rafmagnstafla sett árið 2020 (3ja fasa rafmagn) og lagnir á baði og í eldhúsi nýjar (rör og ídregið og tenglar).

Lagnir utanhúss: Allar lagnir utandyra lagðar nýjar, allt grafið upp og settir lokar úti á plani bæði á heitt vatn og kalt og hitavatnslögn í lóð endurnýjuð, lagt nýtt frárennsli sér frá potti og forhiturum 2019 (ekki í gegnum rotþró þar sem hitinn á slíku frárennsli getur skemmt rotþró). Ný rotþró og frárennsli í hana 2013 -2014 skv. fyrri eigendum (WC, vaskar og uppþvottavél).

Bílastæði er stórt og malborið.  
 
Lóðin er mjög falleg, grasflöt að sunnan og vestan, rólur og klifurgrind, fjölbreyttur gróður. Bústaðurinn er á leigulóð en hana má kaupa. Verðið á lóðinni er 1.875.000 kr.

Læst símahlið er inn á sumarhúsasvæðið. Mjög gott og virkt félag sumarhúsaeigenda í Reykjaskógi. Sameiginlegur leikvöllur á svæðinu með minigolfbrautum, frísbígolfkörfum o.fl.
Snjóruðningur á föstudögum og sunnudögum á veturna ef þörf er á.
 
Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.