Opið hús fimmtudaginn 5. júní frá kl 16:45 til 17:30 - Klapparstígur 1, 101 Reykjavík - íbúð 201
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:Falleg, björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í góðu lyftuhúsi við Klapparstíg 1.Íbúðinni fylgir sérmerkt
bílastæði í lokuðum bílakjallara undir húsinu.
Eignin er 108 fm (þar af geymsla 5,9 fm)Verið er að ljúka viðgerðum við húsið að utanverðu (sem greiðast af seljendum) m.a. múrviðgerðir og málun á húsinu.
Bókið skoðun
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]Lýsing eignar:
Forstofa: Flísar á gólfi, góðir fataskápar.
Setustofa: Mjög rúmgóð og björt stofa, opin við eldhús/borðstofu, parket á gólfi, útgengt á
yfirbyggðar sólarsvalir sem snúa í suður, lausar hlýlegar timburflísar á svalagólfi.
Eldhús: Flísar á gólfi, ljós eikarinnrétting, gott skápa og vinnupláss, opið við borðstofu, gluggi, úr borðstofu er útgengt á rúmgóðar svalir sem snúa í vestur.
Svefnherbergi 1: Rúmgott herbergi, parket á gólfi, miklir fataskápar.
Svefnherbergi 2: Gott herbergi, parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, hvít innrétting undir vaski, flísalagður sturtuklefi.
Íbúðinni fylgir
sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara undir húsinu.
Sérgeymsla í kjallara hússins fylgir íbúðinni.
Íbúðinni fylgir einnig aðgangur að sameiginlegri
hjólageymslu í kjallara hússins.
Íbúðin getur verið laus til afhendingar fljótlega.
Húsvörður starfar fyrir húsfélagið og sinnir eignunum í þyrpingunni við Klapparstíg 1 til 7.
Vönduð íbúð á eftirsóttum stað í miðborginni - örstutt í alla helstu verslun og þjónustu - göngufæri við Hörpuna, Þjóðleikhúsið og fjölmargt annað sem miðborgin hefur uppá að bjóða. Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]