Fornhagi 17 107 Reykjavík (Vesturbær)
Fornhagi 17 , 107 Reykjavík (Vesturbær)
97.900.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 102 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1957 46.900.000 75.950.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 102 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1957 46.900.000 75.950.000 0
Opið hús: 16. júní 2025 kl. 16:45 til 17:30.

Opið hús mánudaginn 16. júní frá kl 16:45 til 17:30 - Fornhagi 17, 107 Reykjavík - íbúð 0108

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:  


Mjög falleg, björt og alveg endurnýjuð 4ra herbergja endaíbúð í eftirsóttu og nýlega viðgerðu húsi við Fornhaga 17 í Vesturbænum
Íbúðin er á 1. hæð (gengið upp einn stiga). Eignin hefur fengið mikið viðhald og endurnýjun að innan og utanverðu undandarin ár.


Lýsing eignar:
Forstofa
: Harðparket á gólfi, fataskápar.
Setustofa: Rúmgóð og björt stofa, opin að hluta við eldhús, harðparket á gólfi, gluggar í tvær áttir.
Eldhús: Nýlega endurnýjað, hvít innrétting með góðu skápa og vinnuplássi, quartz borðplötur, borðkrókur, útgengi á svalir íbúðarinnar.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott herbergi, harðparket á gólfi, búið er að innrétta fataherbergi með skápum á sitthvora höndina.
Barnaherbergi 1: Rúmgott herbergi, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi 2: Einnig gott herbergi, harðparket á gólfi. 
Baðherbergi: Nýlega endurnýuð á smekklegan hátt, flísar á veggjum og gólfi, flísalögð sturta með glerhlið sem gengið er slétt inní, vegginnbyggð blöndunartæki í sturtu og við vask, upphengt salerni, innrétting undir vaski, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, stór skápur, gólfhiti.

Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara hússins (8,3 fm) og geymsluskápur í kjallara. Einnig fylgir íbúðinni aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi, hjólageymslu og hólf í frystigeymslu.

Viðhald/endurbætur:
Þakjárn hússins var endurnýjað 2022/2023
Húsið var múrviðgert og endursteinað árin 2022-2023 (þ.e. sá hluti hússins sem ekki er klæddur)
Gluggar í allri íbúðinni (nema á svölum) voru endurnýjaðir árin 2022-2023. Einnig voru gluggar í sameign endurnýjaðir.
Frárennslislagnir hússins voru fóðraðar árið 2017 
Drenað við suðurhlið hússins 2016.
Raflagnir innan íbúðar voru endurnýjaðar, rafmagnstafla endurnýjuð og aukatafla sett í eldhús árið 2022.

Afar góð og fjölskylduvæn staðsetning - stutt í skóla, leikskóla og alla helstu verslun og þjónustu.
Háskólasvæðið í næsta nágrenni - fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði við sjávarsíðuna - göngufæri við miðborgina.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.