Langahlíð 17 105 Reykjavík (Austurbær)
Langahlíð 17 , 105 Reykjavík (Austurbær)
123.800.000 Kr.
Tegund Hæð
StærÐ 146 m2
HERBERGI 5 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
2 3 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1949 61.430.000 94.300.000 0
Tegund Hæð
StærÐ 146 m2
HERBERGI 5 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
2 3 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1949 61.430.000 94.300.000 0

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir í einkasölu: 
 
Afar fallega og vel skipulagða hæð með sérinngangi í reisulegu steinsteyptu húsi með risi og kvistum. Eignin er samtals 146,8 fm (þar af bílskúr 29,1 fm og geymsla 3,5 fm).
Húsið er byggt árið 1949 eftir teikningum arkitektanna Þóris Baldvinssonar og Arne Hoff-Möller. Það er flokkað í rauðan verndunarflokk í hverfisskipulagi Hlíðahverfis og nýtur hverfisverndar vegna byggingarlistar- og menningarsögulegs gildis.   

Bókið skoðun hjá Ingibjörgu Þórðardóttur löggiltum fasteignasala í síma 864-8800 / [email protected]

Lýsing eignar:
Forstofa:
Flísar á gólfi. Bjart hol tengir saman rými hæðarinnar, parket á gólfi, fataskápar.
Setustofa/Borðstofa: Rúmgóðar og bjartar samliggjandi stofur, útskotsgluggi í borðstofu sem setur mikinn svip á íbúðina, útgengt á svalir sem snúa í vestur með útsýni út á Klambratún, timburflísar á svalagólfi. 
Eldhús: Opið við borðstofu, parket á gólfi, eikarinnrétting, gott skápa og vinnupláss, granítborðplötur, vönduð tæki, eldunareyja sem unnt er að sitja við, gluggi. 
Svefnherbergi 1: Rúmgott hjónaherbergi, parket á gólfi, miklir fataskápar.
Svefnherbergi 2: Forstofuherbergi, flísar á gólfi, fataskápur. 
Svefnherbergi 3: Mjög rúmgott herbergi (var áður tvö herbergi og væri mögulegt að skipta því upp aftur), parket á gólfi, fataskápur, vegginnfellt fatahengi.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, eikarinnrétting undir vaski og skápar, baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni. 

Bílskúr fylgir eigninni í bílaskúralengju austan megin við húsið. Hluti bílskúrsins hefur verið innréttaður sem skrifstofa/sjónvarpsherbergi. Einnig er hægt að ganga inn í bílskúrinn að aftan garðmegin. Bílastæði fyrir tvo bíla (á lengdina) framan við bílskúrinn. 

Íbúðinni fylgir sérgeymsla (3,5 fm) í kjallara hússins. Einnig fylgir íbúðinni aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi í kjallara hússins. 

Lóðin er falleg, stór gróinn sameiginlegur garður aftan við húsið með aflokuðu leiksvæði. Hiti er í stéttum.

Húsinu hefur verið haldið vel við í gegnum árin
Viðhald og endurbætur
·       2006 – Skolp endurnýjað undir húsinu.
·       2008 – Drenað í kringum húsið.
·       2010 – Húsið steinað og gluggar/gler endurnýjað
·       2011 – Þak málað
·       2012 – Þak yfirfarið og lagað
·       2018 – Ofnar innan íbúðar endurnýjaðir
·       2018 – Steinun hússins yfirfarin og þrifin
·       2023 – Húsið þvegið og sílanborið

Falleg eign í eftirsóttu hverfi - stutt í skóla, leikskóla og alla helstu verslun og þjónustu - göngufæri við miðborgina. Klambratún í allra næsta nágrenni, þar er stórt útivistarsvæði ásamt Kjarvalsstöðum og kaffihúsi. Einnig er stutt í Öskjuhlíðina.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.