Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:Falleg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á eftirsóttum stað við Lynghaga í VesturbænumEignin hefur fengið mikla endurnýjun að innanverðu undandarin ár. Eignin er 69,1 fm (þar af sérgeymsla 2,5 fm)
Lýsing eignar:
Gangur: Harðparket á gólfi, fataskápar.
Eldhús: Hvít nýleg innrétting, gott skápapláss, harðparket á gólfi, gluggi.
Setustofa: Björt setustofa, harðparket á gólfi, opin við gang.
Herbergi 1: Mjög rúmgott herbergi, harðparket á gólfi, fataskápar.
Herbergi 2: Einnig rúmgott herbergi, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, flísalagður sturtuklefi með glerhlið, upphengt salerni, handklæðaofn, hvít innrétting undir vaski, skápur ofan við vask, gólfhiti.
Á gangi framan við inngang íbúðarinnar er skápur.
Íbúðinni fylgir
sérgeymsla (2,5 fm) í kjallara. Íbúðinni fylgir einnig aðgangur að sameiginlegu
þvottahúsi í kjallara.
Sameiginleg
útigeymsla er á baklóð.
Viðhald/endurbætur2021 - Ný IKEA eldhússinnrétting, innihurðir frá Birgisson og fataskápar.
2021 - Ný rafmagnstafla og rafmagn í eldhúsi endurnýjað. (Raflagnir fræstar í gólfið). Gagnatenglar í öll herbergi.
2021 – Pergo harðparket lagt á alla íbúðina – flotað undir.
2022 – Baðherbergi endurnýjað og lagt fyrir hita í gólf.
2022 - Húsfélagið lét fóðra skolplagnir undir húsinu. Drenað frá suðurvegg á sama tíma og skolplagnir voru fóðrarar.
2024 – Húsfélagið lét múra upp útitröppurnar og sprauta þéttiefni í sprungur
Afar góð og fjölskylduvæn staðsetning - stutt í skóla, leikskóla og alla helstu verslun og þjónustu. Grænt svæði með leiktækjum og sparkvelli er aðgengilegur frá bakhlið hússins.
Háskólasvæðið í næsta nágrenni - fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði við sjávarsíðuna - göngufæri við miðborgina.Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / [email protected]