Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:
Falleg, björt og mikið endurnýjuð 4ra herbergja endaíbúð á rólegum og fjölskylduvænum stað við Álagranda í Vesturbænum
Íbúðin sem er skráð 111,7 fm er mjög vel skipulögð - þrjú rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni. Lýsing eignar:
Forstofa/hol: Parket á gólfi, stór fataskápur
Setustofa/borðstofa: Mjög rúmgóð og björt, parket á gólfi, útgengi á stórar, sólríkar suðvestursvalir.
Eldhús: Hvít innrétting, flísar á veggjum, parket á gólfi, quartz steinn á borðum, borðkrókur, gluggar á tveimur hliðum. Nýleg AEG eldhústæki.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi, parket á gólfi, fataskápar
Barnaherbergi 1: Mjög rúmgott barnaherbergi innst á ganginum, parket á gólfi, fataskápur.
Barnaherbergi 2: Einnig rúmgott herbergi, parket á gólfi.
Baðherbergi: Endurnýjað fyrir fáeinum árum, flísar á veggjum og gólfi, hvít innrétting undir vaski, baðkar með flísalagðri hlið, gluggi.
Þvottahús/geymsla: Er innan íbúðar, tengi fyrir vélar, innrétting og skolvaskur, gluggi. Á vinstri hönd er geymslueining með skápum og hillum.
Frábærlega vel staðsett íbúð - örstutt í skóla, leikskóla og íþróttasvæði KR.Verslanir og öll helsta þjónusta í nágrenninu - göngufæri við miðborgina og Grandann.
Viðhald/endurbætur:2021-2022
Alsherjar framkvæmd á öllu húsinu í kjölfar úttektar. Verkinu var stýrt af Verksýn.
Múrviðgerðir og húsið málað að utanverðu.Þakjárn og þakpappi hússins var endurnýjað.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]