Opið hús: 16. október 2025 kl. 17:00 til 17:30.
Opið hús fimmtudaginn 16. október frá kl 17:00 til 17:30 - Framnesvegur 23, 101 Reykjavík - íbúð 0301
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:Mjög falleg og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á efstu hæð í húsi byggðu árið 2003 á eftirsóttum stað í Gamla Vesturbænum
Eignin er skráð 128,2 (þar af geymsla 7,9 fm)Lýsing eignar:
Forstofa/hol: Rúmgott parketlagt hol sem tengir saman rými íbúðarinnar, fataskápar.
Eldhús: Opið við stofur, ljós viðarinnrétting með granítborðplötum, eldunareyja með borðkrók og hærri skápum sem skerma eldhús af frá stofum að hluta, gluggar.
Stofa og borðstofa: Stórar samliggjandi og bjartar stofur, parket á gólfi, útgengt á stórar og flísalagðar svalir sem snúa í suðvestur.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi, parket á gólfi, fataskápar.
Barnaherbergi 1: Gott herbergi, parket á gólfi, innfelldir fataskápar.
Barnaherbergi 2: Einnig gott herbergi, parket á gólfi.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað, flísar á veggjum og gólfi, upphengt salerni, baðkar með flísalagðri hlið og gleri áfast við vegg og baðkarsbrún, innrétting með tvöföldum vaski.
Þvottahús: Innan íbúðar, flísar á gólfi, vegghillur, skolvaskur.
Íbúðinni fylgir sérgeymsla á jarðhæð hússins (7,9 fm).
Aðgangur að sameiginlegri hjóla & vagnageymslu á jarðhæð.
Stutt í alla helstu verslun og þjónustu - göngufæri við miðborgina - Grandinn í allra næsta nágrenniNánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]