Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: Falleg og björt 3ja herbergja útsýnisíbúð á 3. hæð ásamt stæði í bílageymslu í nýlega viðgerðu fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað á Seltjarnarnesi.
Íbúðinni fylgir rúmgott sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara undir húsinu.Eignin er skráð 72,4 m² en þar að auki fylgir eigninni um 7,3 fm sérgeymsla (skv eignaskiptasamningi) í kjallara sem er ekki skráð í birta fermetratölu eignarinnar.
Heildarstærð eignar með geymslu er því rétt um 80 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa/hol: Parket á gólfi, tengir saman rými íbúðarinnar, fatahengi.
Setustofa: Rúmgóð og björt stofa með stórum gluggum og fallegu útsýni, stofa er opin við eldhús.
Eldhús: Flísar á gólfi, svört endurnýjuð innrétting, eldunareyja sem unnt er að sitja við, opið við setustofu, útgengi á rúmgóðar, skjólsælar og sólríkar svalir sem snúa í suður.
Svefnherbergi 1: Rúmgott hjónaherbergi, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Einnig gott barnaherbergi, parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, endurnýjuð hvít innrétting undir vaski með viðarborðplötu, baðkar.
Íbúðinni fylgir rúmgóð
sérgeymsla í kjallara hússins sem er ekki skráð í birta fermetratölu eignarinnar.
Íbúðinni fylgir sérmerkt
bílastæði (nr 18) í lokuðum bílakjallara hússins.
Þvottahús: Íbúðinni fylgir aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi á jarðhæð hússins þar sem hver og ein íbúð hefur tengi.
Viðhald/endurbæturHúsið var múrviðgert og málað að utanverðu árið 2025
Þakjárn hússins var endurnýjað árið 2025
Gluggar íbúðarinnar voru endurnýjaðir (allir nema í stærra svefnherberginu) árið 2025.
Afar falleg íbúð í húsi sem hefur fengið mikið viðhald á góðum stað á Seltjarnarnesi. Stutt í alla helstu verslun og þjónustu.
Húsið var byggt af Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars (Bygg).
Nánari upplýsingar
Ólafur Már Ólafsson, löggiltur fasteignasali í síma 865-8515 / [email protected].
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / [email protected]