Opið hús: 24. febrúar 2026 kl. 16:30 til 17:15.
Opið hús þriðjudaginn 24. febrúar frá kl 16:30 til 17:15 - Álftamýri 34, 108 ReykjavíkFalleg, vel skipulögð og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á 1. hæð ásamt bílskúr í góðu fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað við Álftamýri 34
Eignin er skráð 109,8 fm hjá HMS (þar af sérgeymsla í kjallara 6,6 fm og bílskúr 20,9 fm).Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: Lýsing eignar:
Forstofa/hol: Parket á gólfi, fatahengi.
Eldhús: Á vinstri hönd við inngang, endurnýjað fyrir tveimur árum, hvít HTH innrétting með mjög góðu skápa og vinnuplássi, flísar á gólfi, barborðkrókur, gluggi.
Setustofa: Mjög rúmgóð og björt, gegnheilt parket á gólfi, útgengi á skjólgóðar og sólríkar svalir sem snúa í suður.
Svefnherbergi 1: Rúmgott hjónaherbergi, parket á gólfi, nýlega endurnýjaðir hvítir fataskápar.
Svefnherbergi 2: Gott barnaherbergi, parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, viðarinnrétting undir vaski, upphengt salerni, baðkar.
Gegnheilt parket er á gólfum íbúðarinnar nema eldhúsi og baðherbergi sem eru flísalögð. Parketið var slípað upp og lakkað fyrir tveimur árum.
Bílskúr í bílskúralengju til móts við húsið fylgir eigninni, bílskúrinn er 20,9 fm og er með hita, rafmagni, rennandi vatni og loftglugga.
Eigninni fylgir
sérgeymsla í kjallara hússins
Eigninni fylgir aðgangur að sameiginlegu
þvottahúsi í kjallara hússins þar sem hver og ein íbúð hefur tengi. Sameiginleg
hjóla & vagnageymsla er einnig í kjallara hússins.
Viðhald/endurbætur2017-2018 var húsið sprunguviðgert og málað.
2017 var þakjárn hússins endurnýjað og soðinn dúkur/þakklæðning settur yfir bílskúra.
Raflagnir innan íbúðar voru endurnýjaðar árið 2024.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]