Brekkuskógar 8 Vesturbær 225 Garðabær
Brekkuskógar 8 Vesturbær , 225 Garðabær
220.000.000 Kr.
Tegund Einbýli
StærÐ 266 m2
HERBERGI 6 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
3 3 3 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1963 118.900.000 156.600.000 0
Tegund Einbýli
StærÐ 266 m2
HERBERGI 6 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
3 3 3 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1963 118.900.000 156.600.000 0

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: 
 
Brekkuskógar 8 (Vesturbær) á Álftanesi
Einstakt og afar glæsilegt einbýlishús á einni hæð ásamt stúdíóíbúð og stórum bílskúr á friðsælum útsýnisstað á sunnanverðu Álftanesi.
Húsið er sannkölluð arkitektaperla en það var teiknað af Guðmundi Kr. Kristinssyni arkitekt. Guðmundur byggði húsið og bjó þar sjálfur ásamt fjölskyldu sinni um árabil.
Húsið stendur á 3.400 fermetra eignarlóð og nýtur óviðjafnanlegs útsýnis til sjávar og yfir Reykjanesfjallgarðinn.


Eignin er samtals skráð 266,9 fm (þar af stúdíó 44,1 fm og bílskúr 48,8 fm).

Bókið skoðun hjá Ólafi M. Ólafssyni löggiltum fasteignasala í síma 865-8515 / [email protected] og/eða Ingibjörgu Þórðardóttur löggiltum fasteignasala í síma 864-8800 / [email protected]

Lýsing eignar: 
Forstofa:
Flísar á gólfi, sérsmíðað fatahengi með skúffum.
Setustofa: Úr forstofu er komið inn í bjarta og rúmgóða setustofu með gólfsíðum gluggum og glæsilegu og víðáttumiklu útsýni, teppi er á gólfum, útgengt á lóðina til suðurs um rennihurð.
Hellulögð verönd sunnan við húsið með pergólum og glæsilegu útsýni.
Arinstofa: Flísar að hluta og teppi að hluta á gólfum, veglegar upphaflegar sérsmíðaðar bókahillur, gólfsíður gluggi, arinn sem er opinn frá öllum hliðum. Reykháfurinn er úr svörtu stáli og var hannaður af Guðmundi Kr. Kristinssyni. 
Hjónasvíta: Teppi á gólfi, gólfsíður gluggi, léttir veggir sem er hægt að renna til (brautir í gólfi) og unnt að opna inn í arinstofuna. Innangengt í fataherbergi sem er teppalagt og með sérsmíðuðum upphaflegum innréttingum, þar er einnig vaskur. Úr fataherberginu er gengið inn á baðherbergi sem er með flísum á gólfi og mósaíkflísum á veggjum, flísalögð sturta sem gengið er slétt inn í. Úr forstofu er einnig hægt að ganga inn á þetta sama baðherbergi sem þjónar húsinu sem gestasalerni.
Eldhús: Er staðsett milli borðstofu og setustofu, upphafleg innrétting sem hefur verið lagfærð og uppfærð í gegnum árin og nýjum tækjum komið fyrir, tveir vaskar, gólfsíðir útsýnisgluggar sunnanmegin við enda eldhússins, borðaðstaða er hluti af innréttingunni sem unnt er að sitja við á háum stólum. Loftgluggar eru í eldhúsi sem gefa góða birtu inn í rýmið. 
Borðstofa: Rúmgóð og björt, flísar á gólfi, rýmið var einnig hugsað sem leik og vinnuherbergi framan við barnaherbergin þar sem barnaherbergin sjálf eru lítil og voru fyrst og fremst ætluð til svefns. 
Barnaherbergi: Austast í húsinu við borðstofuna eru barnaherbergin en upphaflega voru teiknuð fjögur herbergi og eru ennþá fjórar hurðir til staðar. Í dag eru hinsvegar tvö rúmgóð herbergi þar sem tveir milliveggir hafa verið teknir niður og tvö og tvö herbergi sameinuð í eitt. Unnt væri að slá aftur upp milliveggjunum ef vilji stæði til þess að hafa herbergin fjögur en allar hurðir eru ennþá á sínum stað.
Baðherbergi: Í norðurhluta hússins er rúmgott baðherbergi, flísar á gólfi, mósaíkflísar á veggjum, baðkar, veggskápar, gluggar. 
Í norðurhluta hússins næst borðstofu er flísalögð forstofa/miðrými þar sem er einnig annar inngangur í húsið. Þar inn af er þvottahús.
Tæknirými hússins fyrir inntök og hitastýringu er í rými við hlið miðrýmis/bakinngangs.

Í norðurhluta hússins er gólfhiti en í suðurhluta hússins er lofthiti (blásturshiti).

Vestan við húsið er 92,3 fm bygging sem skiptist í 48,8 fm tvöfaldan bílskúr og 44,1 fm vinnustofu/stúdíó (stúdíóið er skráð sem geymsla hjá HMS). Lokið var við þennan hluta hússins árið 2009. 
Stuðst var við teikningu Guðmundar Kr. Kristinssonar, arkitekts Vesturbæjar, og fyrrum eiganda hússins. Loft í báðum rýmum voru einangruð með steinull og klædd með gipsplötum (í vinnustofu), byggðir voru innveggir í vinnustofu fyrir lítið baðherbergi og eldhús. Gólfhita var komið fyrir í vinnustofu og stórum ofni í bílskúr. Vatnslögn, frárennslislögn og raflögn í vinnustofu og bílskúr voru lagðar og tengdar við íbúðarhúsið.
Í bílskúrnum er hleðslustöð fyrir rafbíla.

Hér er um er að ræða algjörlega einstakt hús sem er einkennandi fyrir módernismann sem arkitektinn Guðmundur Kr. Kristinsson var að prófa sig áfram með á þeim árum sem húsið var byggt. 
Arkitektarnir Guðmundur Kr. Kristinsson og Manfreð Vilhjálmsson voru af sömu kynslóð og höfðu lík viðhorf til byggingarlistar. Þeim bauðst byggingarland á Álftanesi og kusu að vinna saman að einni teikningu fyrir tvö jafnstór hús. Húsin voru á margan hátt tilraunahús sem arkitektarnir byggðu fyrir eigin fjölskyldur. Þau voru nánast eins útlits, en með mismunandi áherslum í innréttingum og efnisvali. Hús Guðmundar nefndi hann Vesturbæ, en hús Manfreðs var nefnt Smiðshús.

Flæði birtu, gólfsíðir gluggar, opin rými, skýr formhugsun en einföld og áhrifamikil rýmisskipun ásamt þægindum einkenna húsið sem endurspeglar vel hina módernísku byggingarlist sem ruddi sér til rúms eftir stríð á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar. 

Húsið var friðað árið 2011 vegna byggingarsögulegs gildis. Þ.e.a.s ytra byrði hússins og burðarvirki.

Vegleg aðkoma er að húsinu með malbikaðri innkeyrslu og bílaplani með plássi/stæðum fyrir nokkra bíla. 

Viðhalds og endurbótalisti hússins frá 2002 fylgir söluyfirlitinu, nánari upplýsingar veita fasteignasalar Híbýla

Nýjar frárennslislagnir voru lagðar í stúdíóið árið 2007 og drenað við þann hluta hússins.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.