Bollagarðar 101 170 Seltjarnarnes
Bollagarðar 101 , 170 Seltjarnarnes
225.000.000 Kr.
Tegund Einbýli
StærÐ 217 m2
HERBERGI 7 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
3 4 2 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1990 135.550.000 184.150.000 0
Tegund Einbýli
StærÐ 217 m2
HERBERGI 7 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
3 4 2 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1990 135.550.000 184.150.000 0
Opið hús: 08. mars 2026 kl. 13:30 til 14:30.

Opið hús sunnudaginn 8. mars frá kl 13:30 til 14:30 - Bollagarðar 101, 170 Seltjarnarnes.

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir

 
Einstaklega glæsilegt og mjög mikið endurnýjað einbýlishús á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað við Bollagarða á Seltjarnarnesi.
Húsið hefur verið endurnýjað að mjög miklu leyti að innanverðu og sá Gríma Björg Thorarensen um hönnun þar sem vandað var til allra verka.


Lýsing eignar:
Forstofa:
Flísar á gólfi, sérsmíðaðir fataskápar frá Beyki. Gestasalerni: Við forstofu, flísar á gólfi, upphengt salerni, viðarinnrétting undir vaski.
Setustofa: Rúmgóð og björt setustofa sem tengist inn í sólskála, flísar á gólfi, opin við eldhús og borðstofu, sérsmíðuð veggeining með hillum, og skápum eru í stofu, innfelld lýsing, hillustoðir úr marmara.
Borðstofa: Opin við stofu og eldhús, flísar á gólfi.
Eldhús: Eldhús var endurnýjað árið 2023 og er með sérsmíðuðum innréttingum frá Beyki, falleg brún viðarinnrétting með mjög miklu skápa og vinnuplássi, flísar á gólfi, gluggar. Eldunereyja sem unnt er að sitja við er einkar glæsileg og setur mikinn svip á rýmið, eyjan er klædd náttúrulegum quartzite stein frá Granítsteinum. Innrétting á vegg er einnig með náttúrulegum quartzite á borðum sem flæðir inn í og undir tækjaskáp. Stórt spanhelluborð og vönduð eldhústæki frá Siemens og AEG.
Úr eldhúsi er gengið um hurð sem fellur inní útlit eldhússins inn í þvottahús og svokallað "mudroom" þar sem bakinngangur hússins er staðsettur. Sérsmíðaðar innréttingar í þvottahúsi eru á sitthvora höndina, tengi fyrir vélar í hentugri vinnuhæð, flísar á gólfi, vaskur, gluggi. Rúmgóð fjölskylduforstofa með flísum á gólfi og stórum fataskáp. 
Úr fjölskylduforstofu við bakinngang er gengið inn í gott herbergi sem var stúkað af úr hluta bílskúrsins sem er innbyggður í húsið. Herbergið er með flísum á gólfi og glugga. Þaðan er svo gengið inn í hinn hluta bílskúrsins sem er nýttur sem geymsla.

Loft á neðri hæð eru niðurtekin að hluta og klædd með hljóðeinangrandi dúk. Lýsingin í húsinu var hönnuð af Grímu Björgu í samstarfi við Lumex.

Gengið um teppalagðan stiga (fyrsta þrep er klætt quartzite stein) upp á efri hæð hússins. Stiginn var endurnýjaður árið 2023.
Fjölskyldurými/sjónvarpshol: Fallegt teppalagt rými með stórum glugga, sérsmíðaður gluggabekkur með viðarfronti frá Beyki og marmara frá Granítsteinum. 
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi, teppi á gólfi, aukin lofthæð, sérsmíðaður rúmgafl með áföstum marmara náttborðum. Úr hjónaherbergi er innangengt í teppalagt fataherbergi sem er með fallegum sérsmíðuðum innréttingum frá Beyki, gluggi. Fataherbergið var áður barnaherbergi og væri unnt að breyta því aftur í fjórða svefnherbergi efri hæðarinnar.
Barnaherbergi 1: Rúmgott herbergi, teppi á gólfum.
Barnaherbergi 2: Einnig gott herbergi, teppi á gólfum.
Baðherbergi: Endurnýjað 2021, flísar á veggjum og gólfi, baðkar með flísalögðum hliðum, sturtuklefi með glerhurð, viðarinnrétting undir vaski, upphengt salerni, handklæðaofn, gluggi.
Ofan við svefnherbergin er gott geymsluloft sem nýtist vel.

Höldur á innréttingum, hurðahúnarhúnar og blöndunartæki í eldhúsi eru frá Buster & Punch og setja fallegan svip á rýmið. Gardínur eru frá Skermi.
Hiti er í gólfum á neðri hæð og ofnar á efri hæð sem voru endurnýjaðir árið 2023.

Hiti, rafmagn og rennandi vatn eru í bílskúrnum. Búið er að kaupa nýja bílskúrshurð með innfelldri hefðbundinni inngönguhurð sem verður sett upp af seljendum.

Lóðin umhverfis húsið er vel hirt, gróin og skjólsæl. Pallur var stækkaður og endursmíðaður árið 2025 og þar er heitur pottur, útisturta, lýsing og garðskúr. 
Góð aðkoma er að húsinu, snjóbræðsla er í bílaplani og stæði fyrir tvo bíla.

Viðhald/endurbætur:
- Þakjárn hússins var endurnýjað árið 2014
- Neysluvatnslagnir hússins hafa verið endurnýjaðar (á árunum 2021 og 2023)
- Raflagnir endurnýjaðar og sett upp ný rafmagnstafla árið 2023. Allt tengt inn í Free at home kerfi sem hægt er að stýra í appi.
- Forhitari og hitagrind hússins endurnýjuð 2014.
- Gler í gluggum voru endurnýjuð árið 2014 (nema á norðurhlið og á þaki í garðskála)
- Húsið var múrviðgert og málað að utanverðu árið 2017.
- Húsið var svo aftur málað að utanverðu árið 2025.

- Gluggar og hurðir voru þéttar árið 2023 og skipt um stormjárn

Hér er um að ræða einstaklega smekklega og vel uppfærða eign þar sem sameinast vandað efnisval, nútímaleg hönnun og gott fjölskylduskipulag.

Stutt í alla helstu verslun og þjónustu, skóla og heilsugæslu - einnig stutt í fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði við sjóinn - golfklúbbur Ness í allra næsta nágrenni.


Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.