Opið hús: 23. mars 2026 kl. 16:45 til 17:15.
Opið hús mánudaginn 23. mars frá kl 16:45 til 17:15 - Jöfursbás 11E - bjalla 201
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:Falleg og mjög vel skipulögð 4ra herbergja íbúð með sérinngangi í lyftuhúsi við Jöfursbás við sjávarsíðuna í Grafarvogi (Gufunesi).
Vestursvalir með mjög fallegu útsýni út á sjóinn. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni. Sérinngangur af útisvölum.
Heimild fyrir dýrahaldi er í húsinu. Forgang að kaupum á íbúðinni hafa einstaklingar á aldrinum 18-40 ára. Forgangurinn er virkur á fyrstu 12 vikunum sem íbúðin er auglýst til sölu.Bókið skoðun hjá Ólafi M. Ólafssyni löggiltum fasteignasala í síma 865-8515 / [email protected]Lýsing eignar:Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápar.
Eldhús: Hvít innrétting með góðu skápa og vinnuplássi, eyja áföst við vegg, harðparket á gólfi, gluggi.
Stofa: Björt stofa er opin við eldhús, harðparket á gólfi, útgengi á svalir sem snúa í vestur og njóta útsýnis út á sjóinn.
Svefnherbergi 1: Við stofu, tvær vegginnfelldar rennihurðir, harðparket á gólfi, fataskápar.
Svefnherbergi 2: Gott herbergi, harðparket á gólfi, fataskápur.
Svefnherbergi 3: Einnig gott herbergi, harðparket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Dúkur á gólfi, hvít innrétting undir vaski, sturtuklefi með gler-rennihurðum, upphengt salerni, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sameiginleg
hjólageymsla og
þvottahús er á jarðhæð. Í sameign er einnig
vinnuaðstaða/veislusalur sem íbúar geta leigt og pósthólfin á einum stað.
Íbúðirnar hafa haft afnot af matjurtargarði sem Reykjavíkurborg lánar Jöfursbás 11.
Íbúðir Þorpsins vistfélags eru á sjávarlóð í nýju hverfi í Gufunesi. Frá lóðinni er glæsileg sjávarsýn og útsýni yfir Geldinganes og Viðey. Í hverfinu og meðfram lóðinni verða göngu- og hjólastígar meðfram ströndinni sem tengjast grónum íbúðasvæðum í Grafarvogi.
Í Gufunesi verður blönduð byggð fyrir íbúðir, smærri atvinnurekstur, skapandi iðnað, menningu, menntun, sýningar- og atburði, ferðamannaiðnað og sjálfbærar samgöngur. Gufunesið verður þannig einstakt hverfi í borginni þar sem iðnaðarmannvirki, manngert landslag, afþreying- og útivist og stórfengleg fjallasýn við sjávarsíðu mynda órjúfanlega heild. Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]