Bollagarðar 37 170 Seltjarnarnes
Bollagarðar 37 , 170 Seltjarnarnes
199.500.000 Kr.
Tegund Raðhús
StærÐ 216 m2
HERBERGI 8 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
3 5 2 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1980 103.700.000 158.500.000 0
Tegund Raðhús
StærÐ 216 m2
HERBERGI 8 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
3 5 2 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1980 103.700.000 158.500.000 0
Opið hús: 21. mars 2026 kl. 12:45 til 13:45.

Opið hús laugardaginn 21. mars frá kl 12:45 til 13:45 - Bollagarðar 37, 170 Seltjarnarnes

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir

 
Fallegt, vel skipulagt og mikið endurnýjað raðhús með glæsilegu sjávarútsýni og innbyggðum bílskúr á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað við Bollagarða á Seltjarnarnesi.
Eignin er skráð 216,3 fm (þar af bílskúr 22,9 fm. Þar að auki er stór geymsla undir öllum bílskúrnum sem er ekki skráð í birta fermetratölu eignarinnar.

Lýsing eignar:
Forstofa: Flísar á gólfi, fatahengi. Gestasalerni: Við forstofu, flísar á gólfi, upphengt salerni, hvít innrétting undir vaski, handklæðaofn. Hiti í gólfum í forstofu og á gestasalerni.
Herbergi 1: Mjög rúmgott herbergi við forstofu, parket á gólfi.
Gengið upp hálfa hæð í samliggjandi eldhús, borðstofu og setustofu. Eldhús er með hvítri endurnýjaðrin innréttingu, mjög gott skápa og vinnupláss, eyja áföst við vegg, quartz borðplötur frá Granítsmiðjunni, parket á gólfi, gluggi með miklu útsýni.
Bjartar samliggjandi stofur, aukin lofthæð, parket á gólfum, víðáttumikið útsýni er úr stofum og eldhúsi yfir Faxaflóann, allt frá Snæfellsjökli að Úlfarsfelli.
Efsti pallur: Úr stofum er gengið um steyptan stiga með endurnýjuðu svörtu stál stigahandriði upp á efsta pall hússins,
Herbergi 2: Rúmgott hjónaherbergi með parketi á gólfi, fataskápum og útgengi á suðursvalir.
Herbergi 3: Mjög rúmgott barnaherbergi, parket á gólfi, fataskápur.
Sjónvarpsstofa: Milli herbergjanna tveggja á efsta palli er gott fjölskyldurými/sjónvarpsstofa, parket á gólfi. Einfalt mál væri að slá upp vegg og gera rýmið að sjötta svefnherbergi hússins.
Baðherbergi: Endurnýjað fyrir fáeinum árum, flísar á veggjum og gólfi. Hvít innrétting undir vaski, flísalögð sturta með glerhlið, baðkar með flísalagðri hlið, gluggi með rafmangsopnun, hiti í gólfum.

Úr forstofu er gengið niður á neðsta pall hússins, Hiti er í gólfum á ganginum.
Herbergi 4: Mjög rúmgott herbergi, parket á gólfi.
Herbergi 5: Gott herbergi, parket á gólfi.
Þvottahús: Rúmgott þvottahús með epoxy á gólfi, vegghillur, gluggi.

Bílskúr: Úr forstofu er innangengt í bílskúr hússins sem er rúmgóður og með epoxy á gólfi. Úr bílskúrnum er niðurgengt í stóra rúmlega 20 fm geymslu undir öllum skúrnum sem ekki er með í heildarfermetratölu hússins. Nýlega steypt gólfplata undir bílskúrnum og er lofthæð um 2,1 m. 

Framan við húsið er steypt & munstruð, skjólgóð, afgirt verönd með nýlegum timbur skjólveggjum sem snýr í suður. Veröndin er með hitalögnum undir.
Tvöföld innkeyrsla með nýju (2025) steyptu, munstruðu plani með snjóbræðslu. Rafmagn er tengt á nokkrum stöðum í planið og einnig hefur verið lagt fyrir rafmagni í beð fremst við innkeyrsluna.
Norðan við húsið er frágenginn garður, tyrfð flöt og steinhleðsla næst götu.

Viðhald/endurbætur: 
- Þakjárn hússins var endurnýjað árið 2007
- Neysluvatnslagnir hússins voru endurnýjaðar árið 2020. 
- Forhitari hússins endurnýjaður 2020.
- Gluggar hússins voru allir endurnýjaðir árið 2020.
- Húsið var múrviðgert árið 2025, suðurhllið máluð 2025. Norðurhlið verður máluð fyrir afhendingu hússins.

Hér er um að ræða mjög vel skipulagt fjölskylduhús með glæsilegu útsýni og fjölda svefnherbergja.

Stutt í alla helstu verslun og þjónustu, skóla og heilsugæslu - örstutt í fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði við sjóinn - golfklúbbur Ness og Grótta í allra næsta nágrenni.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.