Opið hús: 03. júní 2026 kl. 16:45 til 17:30.
Opið hús miðvikudaginn 3. júní frá kl 16:45 til 17:30 - Rekagrandi 2, 107 Reykjavík - íbúð 0304
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:Falleg, björt og mikið endurnýjuð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð ásamt stæði bílageymslu á fjölskylduvænum stað í Vesturbænum.Eignin er skráð 99 fm, þar að auki fylgir
sérgeymsla í kjallara hússins sem er ekki skráð í birta fermetratölu eignarinnar.
Lýsing eignar:Forstofa: Parket á gólfi, fataskápur.
Setustofa/borðstofa: Rúmgóð og björt stofa, opin við borðstofu og að hluta við eldhús, parket á gólfi, útgengi á stórar og skjólgóðar
svalir sem snúa í suður.
Eldhús: Endurnýjað (2020) með fallegri grárri innréttingu, mjög gott skápa og vinnupláss, quartz borðplötur, innbyggð eldhústæki, tækjaskápur, parket á gólfi, gluggi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi, parket á gólfi, fataskápar, útgengi á svalir með fallegu sjávarútsýni.
Barnaherbergi 1: Gott herbergi, parket á gólfi, fataskápur.
Barnherbergi 2: Einnig gott barnaherbergi, parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Smekklega endurnýjað fyrir fáeinum árum (2020), flísar á veggjum og gólfi, hvít innrétting undir vaski, upphengt salerni, flísalagður sturtuklefi með glerhlið sem gengið er slétt inní, vegg-innbyggð blöndunartæki í sturtu, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél, gluggi.
Íbúðinni fylgir
sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara, búið er að leggja fyrir rafhleðslustöð við bílastæðið.
Einnig fylgir íbúðinni
sérgeymsla í kjallara (ekki skráð í birta fermetratölu eignarinnar), aðgangur að sameiginlegu
þvottahúsi og
hjólageymsla. Einnig er aðkoma af jarðhæð í hjólageymslu.
Viðhald/endurbætur:Þak og þakkantur yfirfarið og málað sumarið 2025
Múrviðgerðir á svölum á suðurhlið 2023
Múrviðgerðir á svölum á norðurhlið 2024
Skólplagnir í kjallara lagaðar út í lóð 2023
Vandað hvíttað eikarparket er á gólfum íbúðarinnar nema baðherbergi sem er flísalagt.
Mjög góð staðsetning og mikil þjónusta í hverfinu. Stutt í skóla og leikskóla og alla helstu verslun og þjónustu á Granda og Eiðistorgi. Íþróttasvæði KR í næsta nágrenni.
Stutt í fallegar göngu- og hjólaleiðir við sjávarsíðuna. Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]