Aflagrandi 40 107 Reykjavík (Vesturbær)
Aflagrandi 40 , 107 Reykjavík (Vesturbær)
62.000.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 80 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1988 47.650.000 46.100.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 80 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1988 47.650.000 46.100.000 0

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:
Falleg 3ja herbergja 80 fm. íbúð á 2. hæð í eftirsóttu, fjölbýli fyrir 60 ára og eldri í Vesturbæ Reykjavíkur.
Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, stórt aðalrými með samliggjandi stofu, borðstofu og eldhúsi, rúmgott baðherbergi og geymslu (búr) í íbúð. Yfirbyggðar svalir.

Lýsing eignar:
Eldhús/stofa/borðstofa: Eldhúsið er með hvítri innréttingu með viðarköntum sem tengist stofu og borðstofu. Útgengt er úr stofunni á yfirbyggðar skjólgóðar svalir með svalalokun og útsýni.
Svefnherbergi: Í íbúðinni eru tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum. Annað herbergjanna hefur verið nýtt sem sjónvarpsherbergi.
Nýtt eikarparket er á allri íbúðinni nema á baðherbergi og geymslu innan íbúðar.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi er í íbúðinni með sturtu, innréttingu og öryggisdúk á gólfi. Þar er tengi fyrir þvottavél. Einnig er hægt að þvo og þurrka þvottí sameiginlegu þvottahúsi fyrstu hæð.
Íbúðinni fylgir sér geymsla í kjallara með góðum hillum
Sameign: Sameign er snyrtileg og sniðin að þörfum eldri borgara. Þar er að finna geymslur íbúða ásamt sameiginlegu rými til að geyma hjólbarða o.þ.h. 
Hiti (snjóbræðsla) er í stéttum kringum húsið. Í sameign hússins er bílageymsla sem íbúar geta nýtt ef þeir kjósa. Tvær lyftur er í húsinu.

Sambyggð húsinu er félagsmiðstöðin Vesturreitir. Þar eiga íbúar völ á hádegisverði auk þess sem þar er boðið upp á fjölbreytt námskeið, leikfimi, hársnyrtingu og fleira. Íbúðin er vel staðsett í húsinu með góðum innréttingum og vönduðu eikarparketi.

Eignin er aðeins seld þeim sem eru félagsmenn í Samtökum aldraðra og eru orðnir 60 ára eða eldri og er laus við kaupsamning.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.