Unnarbraut 6 170 Seltjarnarnes
Unnarbraut 6 , 170 Seltjarnarnes
172.000.000 Kr.
Tegund Einbýli
StærÐ 158 m2
HERBERGI 5 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 4 3 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1963 81.900.000 142.100.000 0
Tegund Einbýli
StærÐ 158 m2
HERBERGI 5 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 4 3 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1963 81.900.000 142.100.000 0

Híbýli fasteignasala kynnir: 

Mjög fallegt, vel skipulagt og mikið endurnýjað einbýlishús á einni hæð á fjölskylduvænum stað á sunnanverðu Seltjarnarnesi. 
Stór bílskúr er við húsið, þar sem hefur verið innréttuð stúdíóíbúð í að hluta.
Eignin er samtals skráð 158 fm (þar af bílskúr 41,6 fm). Þar að auki er rúmgóð útigeymsla aftast á lóðinni sem er 14,9 fm og er ekki skráð í birta fermetratölu eignarinnar.
Skv. gildandi deiliskipulagi er heimilt að byggja eina hæð ofaná húsið. Heimilt viðbótar byggingarmagn er allt að 126,8 fm (nýtingarhlutfall lóðarinnar færi úr 0,22 í 0,4). 

Bókið skoðun hjá Ólafi M. Ólafssyni löggiltum fasteignasala í síma 865-8515 / [email protected]

Lýsing eignar:
Forstofa
: Parket á gólfi, fataskápar. Gestasalerni: Við forstofu, flísar á gólfi, upphengt salerni.
Setustofa/borðstofa: Samliggjandi rúmgóðar og bjartar stofur eru opnar við eldhús, gegnheilt parket á gólfum, útgengi á timburpall og þaðan á tyrfða flöt meðfram húsinu.
Eldhús: Endurnýjuð hvít innrétting með miklu skápa og vinnuplássi, eldunareyja sem unnt er að sitja við, parket á gólfi, gluggar á tveimur hliðum, opið við stofur.

Svefnálma er með fjórum herbergjum, baðherbergi og þvottahúsi. Allar innihurðir voru endurnýjaðar árið 2025.
Herbergi 1: Rúmgott hjónaherbergi, parket á gólfi, fataskápar.
Herbergi 2: Gott barnaherbergi, parket á gólfi, fataskápur.
Herbergi 3: Einnig gott herbergi, parket á gólfi.
Herbergi 4: Innst á ganginum og er jafnframt opið við ganginn, parket á gólfi, bókahillur á vegg, útgengi á timburpall og útisvæðið sunnan við húsið. 
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, baðkar með flísalagðri hlið, hvít innrétting undir vöskum, sturtuklefi með glerhurð, skápar, gluggi.
Þvottahús: Rúmgott með flísum á gólfi, hvítri innréttingu, vinnuborði, skápum og glugga. 

Bílskúr við húsið er skráður 41,6 fm.
Í fremri hluta bílskúrsins eru inntök hússins og gott geymslurými, hillur á veggjum.
Í aftari hluta bílskúrsins er búið að innrétta stúdíóíbúð með sérinngangi af pallinum sunnan við húsið.
Stúdíóíbúðin skiptist í alrými með harðparketi á gólfi og lítilli eldhúsinnréttingu, gluggar sem snúa inn í garðinn. Baðherbergi er flísalagt með upphengdu salerni og sturtu.

Glæsilegt útisvæði er sunnan við húsið, með timburpöllum, heitum potti, útisturtu og yfirbyggðri grillaðstöðu.

Aftast á lóðinni sunnan við húsið er búið að setja upp 14,9 fm útigeymslu með steyptu gólfi, rafmagni, hita og rennandi vatni.

Innkeyrsla framan við bílskúrinn er með plássi á lengdina fyrir 2-3 bíla. Snjóbræðsla er í innkeyrslunni.

Viðhald/endurbætur:
Þakjárn hússins var endurnýjað árið 2013
Frárennslislagnir voru fóðraðar árið 2013
Neysluvatnslagnir hússins voru endurnýjaðar 2020

Afar falleg og vel staðsett eign á Seltjarnarnesi - örstutt í skóla, íþróttastarf, tómstundir, líkamsrækt og heilsugæslu.
Fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði í næsta nágrenni - einnig er stutt í Golfklúbb Ness.


Nánari upplýsingar veitir Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.