Opið hús: 18. nóvember 2026 kl. 16:45 til 17:30.
Opið hús miðvikudaginn 18. nóvember frá kl 16:45 til 17:30 - Fífuhjalli 13, 200 Kópavogur
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: Falleg 2ja herbergja íbúð með sérinngangi í tvíbýlishúsi við Fífuhjalla í suðurhlíðum Kópavogs
Fallegur og skjólgóður suðurgarður. Sérafnotaréttur við inngang íbúðarinnar. Eignin verður afhent með afgirtum sérafnotafleti.
Íbúðinni fylgir eitt bílastæði (næst tröppum) á bílaplani framan við húsið.Arkitekt hússins er Guðfinna Thordarson. Bókið skoðun: Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected] Falleg aðkoma er að húsinu. Steypt, munstrað plan með bílastæðum framan við húsið (eitt bílastæði sem fylgir þessari íbúð).
Gengið niður tröppur meðfram austurhlið hússins að
sérinngangi íbúðarinnar.
Lýsing eignar:
Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur.
Setustofa: Rúmgóð og björt með stórum gluggum, flísar á gólfi.
Eldhús: Viðarinnrétting með góðu skápa og vinnuplássi, flísar á gólfi, borðkrókur, gluggi.
Borðstofa: Opin við eldhús, flísar á gólfi.
Mögulegt væri að færa eldhúsið inn í borðstofu og nýta núverandi eldhús sem auka herbergi.Svefnherbergi: Flísar á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, flísalögð sturta, innrétting undir vaski.
Þvottahús/geymsla: Flísar á gólfi, tengi fyrir vélar, hvít innrétting með góðu skápaplássi, skolvaskur.
Viðhald/endurbæturHúsið að utanverðu (múr og tréverk) var málað árið 2021
Þakjárn hússins var málað árið 2026
Falleg eign á eftirsóttum og veðursælum stað. Stutt í skóla, leikskóla og alla helstu verslun og þjónustu. Einnig stutt í allar helstu stofnæðar höfuðborgarsvæðisins.Nánari upplýsingar veitir Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]