Lindargata 27 101 Reykjavík (Miðbær)
Lindargata 27 , 101 Reykjavík (Miðbær)
112.000.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 106 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2006 62.650.000 94.200.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 106 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2006 62.650.000 94.200.000 0
Opið hús: 29. nóvember 2026 kl. 13:30 til 14:15.

Opið hús sunnudaginn 29. nóvember frá kl 13:30 til 14:15 - Lindargata 27, 101 Reykjavík - íbúð 0504

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: 


Einstök þriggja herbergja endaíbúð við Lindargötu 27 í Skuggahverfinu á 5. hæð með frábæru útsýni.

Íbúðin var tekin í gegn og endurnýjuð árið 2019 og sá Hafsteinn Júlíusson hjá HAF Studio um hönnun.
Stórir gluggar og staðsetning íbúðarinnar í enda hússins veita einstaklega góða birtu og fallegt útsýni í fleiri en eina átt. Frábært lyfthús og næg bílastæði við húsið sem tilheyra íbúum.
Eignin er skráð 106,7 fm (þar af geymsla 9,2 fm).

Lýsing eignar:
Forstofa
: Rúmgóð forstofa með fataskápum og stórbrotnu útsýni yfir sjóinn og Esjuna.
Setustofa og borðstofa: Afar björt, falleg og rúmgóð setustofa sem er opin við eldhús. Útsýni yfir miðbæinn. Útgengi á flísalagðar og skjólgóðar svalir sem snúa í suður. Stór endagluggi með góðu útsýni yfir hverfið og á milli húsa út að sjó.
Eldhús: Hvítlökkuð innrétting með góðu skápa- og vinnuplássi. Eldunareyja sem unnt er að sitja við. Kvartssteinn á borðum og eyju. Gluggi með góðu útsýni. Eldhús og stofur mynda saman bjart og opið alrými.
Svefnherbergi 1: Mjög rúmgott herbergi. Parket á gólfi. Gott skápapláss með hvítlökkuðum innréttingum.
Svefnherbergi 2: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi. Frábært útsýni til norðurs út á sjó.
Baðherbergi: Einstaklega fallegt, vandað og smekklega innréttað. Terrazzo-flísar á veggjum og gólfi. Flísalögð sturta með glerhlið. Vegginnbyggð blöndunartæki í sturtu og við vask. Dökk viðarinnrétting undir vaski. Hvítur kvartssteinn á baðinnréttingu. Baklýstur hringspegill ofan við vask. Upphengt salerni. 
Þvottahús: Innan íbúðar. Flísar á gólfi, hvít innrétting með góðum skápum og hirslum. Tengi fyrir vélar í hentugri vinnuhæð. Skolvaskur.

Íbúðinni fylgir rúmgóð sérgeymsla (9,2 fm) í kjallara hússins. Sameiginleg hjólageymsla er á jarðhæð hússins. 
15 sameiginleg bílastæði eru á lóðinni framan við húsið sem íbúar deila. 

Afar glæsileg og vönduð íbúð á eftirsóttum stað í miðborginni. Örstutt í alla helstu verslun og þjónustu – göngufæri við Hörpuna, Þjóðleikhúsið og annað sem miðborgin hefur upp á að bjóða.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu [email protected]
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.